Vetrarhlaup UFA
30. október n.k. verður næsta vetrarhlaup UFA en þau eru alltaf síðasta laugardag í hverjum mánuði.
hlaupinn er 10 km hringur
Keppt er í stigakeppni í flokki karla og kvenna og einnig í tveimur aldursflokkum.
Aldursflokkarnir skiptast þannig:
-
Karlar 45 ára og yngri og 46 ára og eldri.
-
Konur 39 ára og yngri og 40 ára og eldri.
Allir þátttakendur fá eitt stig fyrir hvert hlaup sem þeir taka þátt í.
Fjögur efstu sætin í hverjum flokki gefa síðan 2-5 stig, þannig að fyrsti maður fær 5 stig, annar 4 stig, þriðji 3 stig og fjórði 2 stig.
Í boði er liðakeppni sem Bootcamp vill endilega taka þátt í
Þrír til fimm geta skráð sig saman í sveit og gildir samanlagður tími fyrstu þriggja í sveitinni í hverju hlaupi (séu fjórir eða fimm skráðir í sveit þurfa þeir því ekki allir að mæta alltaf í öll hlaupin). Stigagjöf fyrir liðakeppnina verður með sama hætti og í einstaklingskeppninni. Fyrsta sveitin fær fimm stig, önnur fjögur og svo koll af kolli.
Verðlaun verða veitt að loknu síðasta hlaupinu.
Glæsileg verðlaun fyrir stigahæstu menn og konur og sigursveitina í liðakeppninni. Að ógleymdum útdráttarverðlaunum. Þátttaka í hverju hlaupi gefur einn miða í pottinn svo þeir sem taka þátt í öllum hlaupunum eiga sex miða í pottinum, vinningsmöguleikar aukast því eftir því sem fólk hleypur oftar.
Endilega látið vita af ykkur hér fyrir neðan ef þið hafið áhuga þannig að við getum sett saman lið :)
Kv Trainers
ÚTIĆFING
Laugardaginn n.k. 23.október verður 2 tíma útiæfing í skóginum við Húsabrekku ( afleggjarinn við Vargjá) ( við útsýnispallinn á Svalbarðsströndinni) Þar sem ein skemmtilegasta útiæfing fyrr og síðar var haldin Hvítasunnuna 2009 :) Með óvæntum endi hehe
Æfingin hefst kl 10:00 þannig að það er mæting í síðasta lagi 9:55 og æfingunni líkur kl 12:00
Endilega takið vini ykkar með og leyfið þeim að kynnast Bootcamp :)
Lokahóf verður haldið á Greifanum um kvöldið og er skráning á það hér eða á facebook síðu okkar
Ef einhver vill bjóða í partý eru bootcamparar alltaf til í partý :)
KV trainers
Ţrekmeistarinn 6. nóvember
Minnum á þrekmeistarann sem verður haldinn 6. nóvember n.k.
Það vantar í strákaliðið okkar, og ef áhugi er fyrir hendi er hægt að hafa liðin 2 :)
Eins með stelpulið, að þá erum við með mjög gott lið sem lenti í 2. sæti í vor og stefnir hærra núna :) en þær stelpur sem hafa áhuga á að vera með eru endilega hvattar til að stofna annað lið og vera með :)
Þeir sem hafa áhuga eru vinsamlegast beðnir um að kommenta hér eða tala við trainers í tíma/ email
Koma svoooo!!!!
Kv Trainers
Námskeiđ september
MINNUM Á:
- Mæta með inni og útiföt
- Mæta tímanlega
- akureyri@bootcamp.is fyrir spurningar, upplýsingar, matardagbækur, matarprogram, lyftingaprogram, ráðleggingar, ábendingar og fleira sem ykkur dettur i hug
- Bootcamp Akureyri á facebook http://www.facebook.com/group.php?gid=101803119662&v=info&edit_info=all#!/group.php?gid=101803119662
KV Trainers
Laugardagur
Aukaæfing Laugardag:
Mæting kl 07 við skíðahótelið í Hlíðarfjalli
Gengið á Hlíðarfjall
Hjálpað 24x24.is meðlimum að safna steinum í vörðuna sína
Gengið á 3 tinda í viðbót og endað á Strýtu
Kynning á www.24x24.is
Bootcamparar hafa hingað til verið þekktir fyrir að vera í góðu formi og til í að taka á því... við verðum enga stund að safna í vörðuna þeirra... þeir eru komnir með 2 metra af 5 metrum sem varðan á að vera
Veðurspáin getur varla verið betri
Nánari upplýsingar hjá skipuleggjanda og stjórnanda ferðarinnar Ragga Sverris
Flutt í Ţrekhöllina
BOOTCAMP verður framvegis í
ÞREKHÖLLINNI
mán/mið/fös kl 06:10
Kv Trainers
Fjallganga
Því mður vantar guide til að fara í lengri fjallgöngur á laugardaginn... en Súlur eru alltaf hressandi og hægt að ganga yfir á Ytri Súlur, Krummana, Bónda, Þríklakka og Hverfanda með góðu móti þegar maður er kominn upp...
en einnig er sú hugmynd að ganga á Strýtu á fimmtudaginn ef áhugi er fyrir hendi
Kv Trainers
Vika 5 - Vinavika
Vika 5
verður að þessu sinni
vinavika
og mega allir bjóða 2 vinum sínum með 30.ágúst - 3. september :)
Ef áhugi og næg þátttaka er fyrir hendi er hugmynd um að fara í fjallgöngu laugardaginn 4. september
endilega látið vita ef þið hafið áhuga og hvað fjall ykkur langar á
t.d. Súlur, Hlíðarfjall, Kerling, Strýta og fl
Kv Trainers
Nćsta námskeiđ
6 vikna Boot Camp námskeið hefst 4.ágúst.
Frábærir tímar inni og úti - frábær félagsskapur
Allir vinna á því álagi sem hentar og allir geta verið með.
Skráning í síma: 461-4444.
Sumartilboð: 6 vikur: 9.900.-
VERSLÓ
HVAÐ? 1-2 tíma útiæfing
HVAR? Háskólinn á Akureyri, Sólborg
HVENÆR? Frídagur verslunarmanna, mánudagur 2. ágúst klukkan 10:00
Allir mega taka vini sína með sér
þeir sem vilja prófa Bootcamp eru velkomnir og
Gamlir Bootcampers sérstaklega boðnir velkomnir ;)
Kv Trainers